04. febrúar 2007 klukkan 04:10
Jæja drengir síðasta æfing var á þriðjudag og var svona skísæmileg mæting eða 9... En samt engan vegin nógu gott. Ég og siggi erum að hringja út þessa vikun og virkja gamla br leikmenn og svo er verið að vinna í nokkrum nýjum einnig. Svo það er bara hið besta mál. Vona að við förum að sjá fram á bjartari tíma hjá okkur en hefur verið undanfarin 2ár sem hafa verið skelfileg. Núna ætlum við að spíta í lófana allir saman og reysa B.R. veldið upp aftur.
Ef þið vitið um frambærilega leikmenn þá endilega koma með þá á æfingu til okkar á þriðjdagskvöldum kl:21:00 á gerfigraið í laugardal. einnig ef það er einhver sem er að lesa þetta og hefur áhuga á að kíkja þá bara að láta sjá sig.
Eins og ég hefl líka sagt áður þá ætlum við að stefna á að byrja æfingarleikinna í miðjum þessum mánuði.
Einnig hef ég heyrt að það verði ekki íslandsmót innanhús þetta árið eins og hefur tíðkast undanfarin ár. En það er eithvað sem á betur eftir að skýrast á næstuni.
Nú og smá fréttir af Gumma okkar hann er farinn til svíþjóðar í augnaðgerð. Og óskum við honum alls hins besta og sem skemstum bata og vonum auðvita að hann eigi eftir að ná sér sem fyrst og vonum að hann eigi eftir að koma sem allra fyrst aftur í boltan og eigi eftir að salla inn mörkum eins og hans er von og vísa fyrir stórveldið B.R.
En nóg í billi kveðja stjórnin.